Hang tight – this event is 🔥!

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

Kvöldstund með Begga í Sóldögg.
Hver vill ekki sitja heila kvöldstund og hlusta á Begga í Sóldögg rifja upp ferilinn Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur.
Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….
Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur. Beggi lætur gamminn geysa og syngur af innlifun með frábæru bandi .
Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg
Gítar og raddir : Gunnar þór Jónsson
Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson
Slagverk og raddir : Eysteinn Eysteinsson