0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
Kvöldstund með Begga í Sóldögg
Kvöldstund með Begga í Sóldögg
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 26.09.2025 21:00
price Verð frá - 6.500 kr.
Kaupa miða

Kvöldstund með Begga í Sóldögg.

Hver vill ekki sitja heila kvöldstund og hlusta á Begga í Sóldögg rifja upp ferilinn  Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur. 

Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og  Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári  með Sóldögg fyrir aldamót….

Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og  rifjar upp sögur af  skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur. Beggi lætur gamminn geysa og syngur af innlifun með frábæru bandi . 

 Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg

Gítar  og raddir : Gunnar þór Jónsson 

Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson 

Slagverk  og raddir : Eysteinn Eysteinsson