Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds
Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
5.900 kr.
Miðaverð
Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?
— Uppistand tveggja miðaldra kvenna sem vissu betur
Þær eru miðaldra, með víðtæka reynslu — og fáránlega góða og filterlausa rödd á sviði.
Í sýningunni "Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?" sameina Auðbjörg Ólafsdóttir og Sóley Kristjánsdóttir krafta sína og leiða okkur í gegnum sprenghlægilegar hugleiðingar um aldur, sjálfsmynd og hvernig það er að vera miðaldra í heimi sem dýrkar æsku og afneitar seinni skeiðum lífsins.
Þær tala beint frá hjartanu um óskrifaðar reglur samfélagsins, gleðina við að taka pláss og brasi lífsins. Sýningin speglar reynslu okkar allra sem finnum okkur á þessum undarlega en ótrúlega skemmtilega stað á lífsleiðinni.
Þetta er kvöld fullt af krafti, kærleik og krassandi sjálfsskoðun.
Og þú vilt ekki missa af því.
Komdu, þú átt þetta kvöld skilið!
“Sóley og Auðbjörg voru það fyndnar að ég pissaði í mig úr hlátri!”
“Ótrúlega fyndin sýning! Efnistökin og brandararnir eru þannig á það er auðvelt að tengja við það úr okkar daglega lífi”.
“Frábær sýning, gjörsamlega grét úr hlátri!”
“Sóley og Auðbjörg eru gjörólíkar, en báðar óendanlega fyndnar, sjarmerandi og gera stólpagrín að sjálfum sér, samfélaginu og sameiginlegum reynsluheimi kvenna.”
Af hverju förum við ekki bara á gönguskíði - Uppistand
Veldu sætislýsingu
Samtals