0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
NEW EVENT
Sigurdís Tryggvadóttir
Sigurdís Tryggvadóttir
geo Græni hatturinn, Hafnarstræti , 600 Akureyri
date 05.11.2026 21:00
price Verð frá - 5.900 kr.
Kaupa miða

Bergmál fjallanna – útgáfutónleikar Sigurdísar Tryggvadóttur

Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir gefur út sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna. Tónlist Sigurdísar á rætur sínar í djassi en innblásturinn að tónsmíðunum sækir hún í uppruna sinn á Norðurlandi vestra, landslagið sem mótaði hana, fjöllin sem umlykja heimahagana og bergmálið sem endurómar þeirra á milli.

Þessir endurómar tengjast arfleifð Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður Sigurdísar. Hann lést áratug áður en hún fæddist en þau tengjast í gegnum sameiginlega heimahaga, fjölskyldubönd og ástríðu fyrir listsköpun. Jónas var ljóð- og tónskáld og hafa lög hans lifað í karlakórshefð eins elsta kór landsins, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.

Jónas byrjaði ungur að missa sjónina og hefur Sigurdís samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans. Á plötunni hafa einnig tónverk hans við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar fengið nýtt líf.


Ásamt Sigurdísi spila hinn pólski kontrabassaleikari Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth frá Ungverjalandi. Öll búa þau í Danmörku. Á tónleikunum verður vínylplatan Bergmál fjallanna til sölu ásamt bæklingi með fimm ljóðum af plötunni og enskum þýðingum þeirra.