Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!
Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds
X 97.7. kynnir: OASIS Heiðurstónleikar á Græna Hattinum 30. apríl 2027
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar munu OASIS heiðurstónleikar, sem haldnir voru fyrir fullu húsi öskursyngjandi gesta á Akureyri og í Reykjavík í nóvember 2026, verða endurteknir.
Breska hljómsveitin OASIS fagnaði 35 ára starfsafmæli árið 2026 og kemur saman næsta sumar til tónleikahalds víða um Evrópu og af því tilefni kom stórskotalið tónlistarmanna saman til að heiðra sveitina. Hljómsveitina skipa þeir Birgir Þórisson, Daníel Hjálmtýsson, Guðmundur Stefán Þorvaldsson, Hálfdán Árnason, Heiðar Örn Kristjánsson, Helgi Birgir Sigurðsson og Helgi Rúnar Gunnarsson.
Hljómsveitin OASIS var stofnuð í Manchester árið 1991 og hefur sent frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008. Sveitin lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom svo saman í sátt árið 2025 og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.
Hér verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og öskursungin bestu lög OASIS en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.
Miðasala hefst 1. des. kl. 10.00