Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!
Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds
Hljómsveitin Angurværð ætlar að slá aftur í tónleika á Græna Hattinum fimmtudagskvöldið 15.október.
3 ár eru síðan sveitin hélt tónleika á Hattinum og má segja að þetta sé því einstakt tækifæri.
Hljómsveitin var stofnuð á Akureyri árið 2016 og er skipuð þaulreyndu tónlistarfólki:
– Anna Skagfjörð, söngur
– Einar Höllu, gítar og söngur
– Helgi Guðbergsson, bassi
– Borgar frá Brúum, rafmagnsgítar
– Halli Gulli, trommur,
- Ísak Már Aðalsteinsson – píanó
Á tónleikunum lofa þau gæða tónilst, frumsamið efni í bland við vandaðar og vel útsettar ábreiður.
Angurværð hefur komið fram á ýmsum viðburðum og tónleikum síðustu ár og eru umsagnir einróma um fallega og vel útsetta tónlist.
Upplifðu einstakt fimmtudagskvöld með gæða tónlist á einum frægasta tónleikastað landsins.