NEW EVENT

Baggalútur
Árið 2005 kom út frumraun hljómsveitarinnar Baggalúts, þrekvirkið Pabbi þarf að vinna. Með þeirri plötu var mörkuð sú slóð sem hljómsveitin hefur fetað síðan: Allt frá fálmkenndu tilgátuköntrí til fituhúðaðs glitpopps - og auðvitað allt þar á milli. Í tilefni 20 ára afmælis Pabbi þarf að vinna ætlar Baggalútur að halda tónleika á Græna hattinum á Akureyri föstudaginn 6. og laugardaginn 7. júní og dusta rykið af þessum fyrstu lögum sveitarinnar ásamt því að flytja fleiri kunnugleg stef í góðra vina hópi. Pússið stígvélin, burstið hattana og pressið blússurnar - sjáumst á Græna!