Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

Synir Rúnars Júlíussonar heiðra minningu Herra Rokk sem hefði orðið 80 ára þann 13. apríl 2025. Um aukatónleika er að ræða en færri komust að en vildu á fyrstu tónleikana.
Ógleymanleg kvöldstund þar sem ferill rokkskáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.
Og tónlist frá dögum Hljóma, Trúbrots, Lónlí Blú Bojs, Geimsteins, Áhafnarinnar á Halastjörnunni ofl ofl.
Einvala lið hljóðfæraleikara munu verða bræðrunum, Baldri og Júlíusi til stuðnings á þessum tónleikum sem munu örugglega ekki klikka.