Hang tight – this event is 🔥!

Your queue position:
Next update in: 30 seconds
We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Rúnni Júl - 80 ára afmælistónleikar
Synir Rúnars Júlíussonar heiðra minningu Herra Rokk sem hefði orðið 80 ára þann 25. apríl 2025.
Ógleymanleg kvöldstund þar sem ferill rokkskáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.
Þeir Birkir Rafn Gíslason gítarleikari, Guðni Finnsson bassaleikari og Arnar Gíslason trommuleikari, munu verða bræðrunum, Baldri og Júlíusi til stuðnings á þessum tónleikum sem munu örugglega ekki klikka.