Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.
Una hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin í tvígang, sem söngkona ársins 2022 og flytjandi ársins 2024. Fyrsta plata Unu „Flækt og týnd og einmana“ hlaut Kraumsverðlaunin 2022 og platan „Sundurlaus samtöl“ var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin poppplata ársins 2024 af Morgunblaðinu.
Nú mun hún ferðast um landið í sumar ásamt fríðu föruneyti frábærs tónlistarfólks og flytja tónlist sína. Með Unu á sviði verða Hafsteinn Þráinsson gítarleikari, Tumi Torfason trompet- og bassaleikari og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir trommuleikari.