Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Björn Thoroddsen Tríó á Græna hattinum
Björn Thoroddsen verður með tónleika á Græna hattinum á Akureyri fimmtudaginn 27. ágúst. Með honum leika þeir Jón Rafnsson á bassa og Sigfús Örn Óttarsson á trommur.
Í febrúar síðastliðnum gaf Björn út plötuna Friday Night @ Hringbraut sem inniheldur 10 lög í þeim anda sem hefur svifið yfir föstudagsútsendingunum sem Björn hóf á Facabook þegar Covid-faraldurinn skall á samfélaginu.
þar spjallaði hann við fólk og lék alls konar lög, einn síns liðs eða með hljóðfæraleikara eða hljómsveitir með sér og gjarnan hófust
útsendingarnar á "It´s Friday night at Hringbraut – welcome, welcome, welcome".
Á tónleikunum á Græna Hattinum ætla strákarnir að spila lög einsog Stairway to Heaven, Hotel California, Hey Joe, Fix you og allskyns tónlist sem er skemmtileg. Ekki má gleyma sögunum sem tengjast strákunum, en þær má aðeins segja í lokuðu rými.
Bjössi og tríóið munu bjóða uppá skemmtilega tónleika sem hefjast kl 21:00 og verður ekkert gefið eftir rokk, blús, jazz og popp
Miðasala á www.grænihatturinn.is og við innganginn
Miðaverð kr. 5.900,-
Björn Thoroddsen – gítar
Jón Rafnsson – bassi
Sigfús Örn Óttarsson – trommur
Sjá nánar um diskinn á www.jrmusic.is