0

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.
NEW EVENT
Júníus Meyvant
Júníus Meyvant
geo Græni hatturinn, Hafnarstræti , 600 Akureyri
date 19/09/2026 21:00
price Price from - 6.500 kr.
Buy tickets

Júníus Meyvant stígur á svið á græna hattinum ásamt Gítarleikanum Rubin Pollock. Kvōldið verður tileinkað glæ nýjum lögum á næstkomandi breiðskífu. Stuð stemning og reynslu sōgur.

 
Vestmanneyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson byrjaði að glamra á útjaskaðan gítar á tvítugs árunum og fann sig fljótt í tónlistinni. Hann byrjaði að búa til músík undir nafninu Júníus Meyvant og gaf út sitt fyrsta lag Color Decay árið 2014 sem strax náði heimsathygli og var til að mynda valið lag dagsins á Seattle útvarpsstöðinni KEXP. 


Síðan þá hefur hann haldið áfram að grípa hug og hjörtu um allan heim með lögum á borð við Signals, Gold Laces og Ain’t Gonna Let You Drown. Ferillinn spannar nú þrjár breiðskífur og tvær stuttskífur. 


Þjóðlagatónlist Júníusar Meyvant er hjartnæm, hlý og kunnugleg og er hinn óheflaði Unnar skammt undan. Hljóðheimur Júníusar er stór og samansettur af rámri rödd, lokkandi gítarspili, þéttum hrynjanda, lúðrablæstri, hljómborðum og sōmplum .