Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Laugardaginn 5. september snýr Botnleðja aftur til Akureyrar, en þar hefur sveitin ekki komið fram í meira en tvo áratugi.
Tónleikarnir eru hluti af endurkomu sveitarinnar, sem kom aftur saman á þessu ári eftir nokkurra ára hlé frá tónleikahaldi. Botnleðja var stofnuð árið 1994 og vakti strax mikla athygli þegar hún sigraði Músíktilraunir árið 1995. Síðan þá hefur sveitin sent frá sér fimm hljóðversplötur, farið í tónleikaferðir innanlands og erlendis, meðal annars með bresku hljómsveitinni Blur árið 1997, og skipað sér sess sem ein áhrifamesta rokksveit Íslands.
Á Græna hattinum mun Botnleðja flytja öll sín þekktustu lög og fara yfir ferilinn í heild sinni. Gestir mega búast við kraftmiklum tónleikum þar sem öll stærstu lög sveitarinnar fá að hljóma