Hang tight – this event is 🔥!

Your queue position:
Next update in: 30 seconds
We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Jónas Sig og Ritvélar Framtíðarinnar
Jónas Sig heldur tónleika á Græna Hattinum 27. og 28. desember næstkomandi. Á þessum tónleikum verður Jónas með Ritvélar framtíðarinnar með sér sem er stórsveit skipuð einvala tónlistarfólki: Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Ómar Guðjónsson á gítar, Tómas Jónsson á orgvélar og syntha, Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem syngur og spilar á saxafón og Steinar Sigurðarson á saxafón.
Þessi stórsveit hefur ekki komið saman lengi og það verður því einstak tækifæri að upplifa hinn risavaxna hljóm og kraft Ritvélanna. Eitthvað sem enginn gleymir eftir að hafa upplifað. Sérstaklega á Græna Hattinum!