0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
NEW EVENT
Söngsalur MA
Söngsalur MA
geo Græni hatturinn, Hafnarstræti , 600 Akureyri
date 15.06.2026 21:00
price Verð frá - 4.900 kr.
Kaupa miða

Söngvarinn Jónsi, Sigurður Helgi konsertmeistari og Villi Vandræðaskáld halda Söngsal fyrir júbílanta MA á Græna Hattinum

Viðburður sem enginn sannur MA-ingur má missa af. Söngsalur eins og hann gerist bestur.

Syngjum saman undir skólans menntamerki um lífsins skjálfandi lítið lag þar sem draumur Nínu blandast við Gaudeamus og fósturlandsins freyjur. 

HestaJói mun sitja á fremsta bekk, stífur af heimaleikfimi með brændevin í flasken, hugsandi um Álfheiði Björk í dönsku lagi og hnippandi í sætisfélaga sína og og segja: “Mannst´ekki eftir mér?"


Söngvarinn Jónsi og Villi Braga, leikari og Vandræðaskáld,  munu leiða sönginn og reyna af alefli að halda í við einn allra öflugasta konsertmeistara Menntaskólans á Akureyri, Sigurð Helga.

Textar verða upp um alla veggi og óvæntir leynigesti gætu stigið á stokk með stúdentshúfuna á kollinum.


Og ef einhver skyldi vogar sér að móðga þennan mikla hestamann, mun sá hinn sami eiga á hættu að skotið verði á hann!

---------