Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

LOKSINS LOKSINS
SEIÐR kemur með sýninguna Neon Glow 2.0 norður á Akureyri
Áhorfendur fá að upplifa fjölbreytt dansatriði með reif ívafi þar sem notast verður við ýmis áhugaverð áhöld svo sem súlu, stóla og lollipop-lyru!
Þú vilt ekki missa af þessari veislu, svo vertu með og upplifðu töfra súludansins í allri sinni litadýrð
HVAÐ ER SEIÐR?
SEIÐR er fjölbreyttur sviðslistahópur sem hefur það sameiginlegt að bindast gegnum súlu og súludans. Meðlimir hafa ýmist bakgrunn í súludansi og -fitness, fimleikum, loftfimleikum og eldlistum. SEIÐR hefur sett upp fjölda eftirsóttra sýninga innan höfuðborgarsvæðisins allt frá stofnun hans 2021.
Hópurinn hefur einnig komið fram á sviði Þjóðleikhússins, m.a. í verkinu Ást Fedru og hlaut í kjölfarið Grímu-tilnefningu fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins
Endilega fylgdu okkur á FB og Instagram undir @seidrdance