Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!
Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds
Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
NEW EVENT
Hr. Eydís og Erna Hrönn
Alvöru '80s partý – Movie Hits Bestu bíómyndalög níunda áratugarins! Hr. Eydís og Erna Hrönn bjóða nú upp á tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín. Á efnisskránni eru lögin sem hljómuðu í bíómyndunum og urðu meðal vinsælustu laga áratugarins. Hvort sem þú manst eftir þeim úr bíóinu, af VHS-spólunum eða útvarpinu, þá eru þetta lög sem vekja upp minningar og fá flesta til að öskursyngja með. Ef þú hefur áður séð Hr. Eydísi og Ernu Hrönn saman veistu við hverju má búast. Hr. Eydís skipa Örlygur Smári, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason. Tónleikarnir fara fram á Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 10. október.
Forsalan hefst sun.9.ágúst kl. 10.00 á grænihatturinn.is