Endurfundir við Kristján frá Djúpalæk og textana hans
Tónlistar- og sögustund með hljómsveitinni Djúpalæk, þar sem tónum og tali verður beint að textagerð Kristjáns frá Djúplæk við íslensk dans- og dægurlög.
Á milli laga veltir Halldór Gunnarsson, sem kynntist Kristjáni náið í bernsku, upp spurningum á borð við:
Hvers vegna dýfði skáldið tánum í lágmenninguna með þessum hætti?
Hvaða augum leit Kristján áhrifamátt dægurlagatexta?
Hvernig var litið á þetta framtak skáldsins af ólíkum hópum?
Hvernig birtast bernskuslóðir skáldsins og lífsviðhorf í textum hans?
Hver var hans pólitíska sýn?
Hver voru tengsl hans við lagahöfunda?
Hámenning, lágmenning?
Hvenær er texti ljóð og ljóð texti?
Hver er sagan á bak við hvern texta?
Hvernig kall var Kristján?
Hljómsveitina Djúpalæk skipa auk Halldórs sem leikur á harmonikku, píanó og munnhörpu, þau Íris Jónsdóttir, söngkona, Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Sigurður Reynisson trommuleikari.