0

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
Bjarni Ómar - Athvarf, útgáfutónleikar
Bjarni Ómar - Athvarf, útgáfutónleikar
geo Græni hatturinn, 600 Akureyri, Hafnarstræti
date 16.10.2025 20:00
price Verð frá - 3.900 kr.
Kaupa miða

Bjarni Ómar fagnar útgáfu breiðskífu sinnar Athvarf á Græna hattinum

Platan Athvarf markar nýjan kafla í tónlistarferli Bjarna ekki síst vegna þess að platan kom út í tveimur útgáfum,  upphaflega með íslenskum textum þann 14. janúar en í mars kom hún svo út með enskum textum undir heitinu Draw me ásamt einu aukalagi.  Á tónleikunum verður flutt efni af nýju plötunum í bland við eldri lög af fyrri sólóplötum og nýlegum smáskífum.

Þá gaf hann út singulinn Þú fyllir hjartað í apríl og á árinu 2024 sendi hann frá sér blúsaða útgáfu af lagi Bubba Morthens Stál og Hníf en Bjarni tók þátt í sýningu Borgarleikhússins NÍu Líf sem hinn svonefndi Alþýðububbi. 

Sólóplötur Bjarna hafa fengið verðskuldaða athygli enda um vandaðar laga- og textasmíðar að ræða. Textar við lög Bjarna eru afar opinskáir og tilfinningaríkir og ekkert er dregið undan með persónulegri nálgun bæði í hans eigin textum sem og meðhöfunda. 

Þetta kvöld verður fullt af skemmtilegheitum við bestu aðstæður á hinum virta tónleikastað Norðlendinga Græna Hattinum. 

Sjáumst fimmtudaginn 16. október á Græna hattinum. 

Tónleikarnir hefjast kl 21:00, húsið opnar klst áður.

Hljómsveitina skipa:

 Ágúst Leósson - Rafgítar 
 Daníel Birgir Bjarnason – Slagverk
 Jón Karl Ólafsson - Hammondorgel, Strengir
 Níels Ragnarsson - Rafpíanó, Píanó og Brass
 Ragnar Z Guðjónsson – Trommur
 Svavar H Viðarsson - Bassagítar
 Þröstur Leósson – Rafgítar
 Bakraddir - Aðalbjörg Ellertsdóttir og Guðrún Kristín Huldudóttir