Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!
Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 seconds
Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
NEW EVENT
Biggi Maus og Stína Ágústsdóttir
BIGGI MAUS & STÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR
Sumarfögnuður á Græna Hattinum!
Sannkölluð tónlistarveisla verður haldin í tilefni sumarkomu á Græna Hattinum 23. apríl n.k.
Þetta kvöld leiða tvö af okkar áhugaverðustu tónlistaratriðum saman hesta sína: Stína Ágústsdóttir og Biggi Maus & MeMMM. Búast má við gríðarlega fjölbreyttri dagskrá þar sem farið verður úr lifandi rokknýsköpun í mýkri popp og indie-jazz með dramatískum ballöðuinnskotum.
Stína Ágústsdóttir, ein fremsta jazzpoppsöngkona landsin kemur til Akureyrar með sína óviðjafnanlegu rödd og nýtt efni í farteskinu.
Á tónleikunum flytur Stína lög af sinni nýjustu plötu, Yours Unfaithfully, auk nokkurra laga af fyrri plötum þar sem hún blandar saman jazzi, poppi og indie á einstakan hátt. Einnig mun nýútkomna ballaðan „Broken“ fá að hljóma í lifandi flutningi í fyrsta sinn.
Stína hefur fengið fjölda tilnefninga til tónlistarverðlauna og hefur starfað og búið í Montreal í Kanada, í Reykjavík og í Stokkhólmi þar sem hún er búsett núna. Tónleikar Stínu hafa fengið lofsamlega dóma víða í Skandinavíu og Akureyringar muna e.t.v. eftir henni flytja Stairway to Heaven á Rokkland 30 ára tónleikunum sem voru í Hofi í október s.l.
Stína vinnur nú hörðum höndum að næstu útgáfum, sem verða þónokkrar á árinu, og aldrei að vita nema eitthvað splunkunýtt efni fái að fljóta með á tónleikunum.
Með Stínu leika Andreas Hourdakis (gítar) og Valdimar Olgeirsson (bassi).
Biggi Maus & MeMMM
Birgir Örn Steinarsson og ný hljómsveit hans hafa nú starfað saman í um tvö ár undir nafninu Biggi Maus & MeMMM. Sveitin leikur lög frá öllum tónlistarferli Bigga með áherslu á nýsköpun með lifandi flutning í beinum tengslum við sjálfa uppsprettuna. Hvort sem er í útsetningum á eldri tónlist eða nýrri. Engir tveir tónleikar sveitarinnar eru eins. Í fyrra gaf sveitin út sín fyrstu tvö lög (Bandalag dauðra dúfna og Blóðmjólk) og kom fram á tónleikum víða. Þessa daganna vinnur sveitin að sinni fyrstu breiðskífu og brennur á fingurgómunum að koma fram sem oftast.
Meðlimir MeMMM eru;
Hallgrímur Jónas Ómarsson - gítar.
Stefán Gunnarsson - bassi.
Valgarður Óli Ómarsson - trommur.
Þorsteinn Kári Guðmundsson - synthar & gítar.