Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.
Baggalútur
Græni hatturinn
28.09.2024 21:00
Verð frá - 6.900 kr.
Allir fyrir norðan eru að fara í köntrí
Laugardagsköntríveisla Baggalúts á Græna hattinum
Loksins! Loksins! Köntrísveitin Baggalútur snýr aftur á tónlistarlega eldisstöð sína, Græna hattinn á Akureyri, laugardaginn 28. september. Er þetta í fyrsta sinn í áraraðir sem sveitin heldur út fyrir borgarmörkin og vill með þessu svala köntríþorsta norðlendinga. Í þessari tónleikaveislu verður boðið upp á sveitatónlist ýmiskonar, ljúfsárt strandköntrí, harðneskjulega hálendissöngva og hressilegt innsveitablágresi. Verður sveitin fjölskipuð og valinn maður undir nánast hverjum hatti.