Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Svavar Knútur söngvaskáld hefur yndi af því að bjóða allra þjóða kvikindum í heimsókn til landsins til að njóta lands og þjóðar og launa fyrir sig með tónlist og söng.
Fimmtudagskvöldið 13. nóvember býður Svavar Knútur vini sína, Mickey og Michelle frá Ástralíu, velkomna á svið á Græna Hattinum, þar sem þau munu deila kvöldinu og syngja og leika lög fyrir alla sem hafa áhuga á líflegri og skemmtilegri tónlist.
Mickey og Michelle leika saman á hörpu og fiðlu frumsamið efni og perlur úr ýmsum áttum. Tónlist þeirra er bæði heillandi og framsækin og alltaf stutt í skemmtilegar sögur, enda hafa þau ferðast víða og séð margt.
Hægt er að kynnast tónlist þessa stórkostlega pars á vefsíðu þeirra https://www.mickeymichelle.com.
Svavar Knút þarf ekki að kynna, enda alræmdur. Hann mun ekki spila og syngja meira en þörf er á og hlakkar til að gefa vinum sínum rými til að leika sínar listir fyrir gesti og gangandi.