Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Síðasta áratuginn hefur Sycamore Tree skipað sér sess meðal vinsælustu hljómsveita landsins með fjölda laga sem notið hafa mikilla vinsælda á íslenskum útvarpsstöðvum og haldið fjöldamarga tónleika. Kvöldstund með Sycamore Tree er eins og tónlistin þeirra, fallegt ferðalag sem snertir hjörtu hlustenda. Á tónleikunum á Græna hattinum mun sveitin fara í gegnum helstu lög ferilsins, segja sögurnar, flytja nýtt efni, allt sérstaklega útsett fyrir þetta tilefni á afar glæsilegan hátt.
Tíu ár af tónlist, minningum og lögum sem hafa fylgt hlustendum um land allt, nú lifandi á sviði á Græna hattinum. Kvöld þar sem tíu ára saga Sycamore Tree lifnar við á sviðinu.