Hang tight – this event is 🔥!
Your queue position:
Next update in: 30 seconds
Söngvarinn Jónsi, Sigurður Helgi konsertmeistari og Villi Vandræðaskáld halda Söngsal fyrir júbílanta MA á Græna hattinum
Viðburður sem enginn sannur MA-ingur má missa af. Söngsalur eins og hann gerist bestur.
Syngjum saman undir skólans menntamerki um lífsins skjálfandi lítið lag þar sem draumur Nínu blandast við Gaudeamus og fósturlandsins freyjur.
HestaJói mun sitja á fremsta bekk, stífur af heimaleikfimi með brændevin í flasken, hugsandi um Álfheiði Björk í dönsku lagi og hnippandi í sætisfélaga sína og og segja: “Mannst´ekki eftir mér?"
Söngvarinn Jónsi og Villi Braga, leikari og Vandræðaskáld, munu leiða sönginn og reyna af alefli að halda í við einn allra öflugasta konsertmeistara Menntaskólans á Akureyri, Sigurð Helga.
Textar verða upp um alla veggi og óvæntir leynigestir gætu stigið á stokk með stúdentshúfuna á kollinum.
Og ef einhver skyldi voga sér að móðga þennan mikla hestamann, mun sá hinn sami eiga á hættu að skotið verði á hann!
---------