Hang tight – this event is 🔥!

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

Krissmass Spesjal
Þriðja árið í röð er komið að Krissmass Spesjal þeirra Hvanndalsbræðra á Græna hattinum. Gestir að þessu sinni eru hinir óviðjafnanlegu jóladrengir Magni Ásgeirsson og Óskar Pétursson. Það verður drukkið og það verður sungið. Þegar yfir líkur verða gestir tilbúnir að fara heim og halda jólin, einhverjir munu gista fangageymslur en flestir með gleði og frið í hjarta halda heim á leið. Það er spá léttri snjókomu í logni, þið sjáið þetta fyrir ykkur, Óskar syngur Ó' helga nótt og öllum líður vel. Spaug og spilerí. Gleðileg jól !
Hér eru nokkrar umsagnir frá síðustu tónleikum.
***Ég ætlaði á Vitringana 3 en það var uppselt*** - Haraldur Skúlason
***Það stóð að þetta væru Álftagerðisbræður*** Sæmundur Pálsson
***Ég hef sjaldan þurft jafn mikið að pissa*** Helga Ásmundsdóttir
***Ég þurfti að sitja með einhvern alla tónleikana*** Þorgerður Magnúsdóttir
***Óskar er ekkert að yngjast*** Huldar Brjánsson