Hang tight – this event is 🔥!

Your queue position:
Next update in: 30 seconds
We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

GÓSS
Tríóið Góss er skipað Sigríði Thorlacius og bræðrunum Sigurði og Guðmundi Óskari Guðmundssonum. Þau hafa undanfarin ár flakkað spilandi og syngjandi um landið. Prógramið eru lög héðan og þaðan - frumsamin lög og tökulög, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög. Allt í bland og öllu skellt í einhverskonar þríraddaðan sveitabúning. Platan Góssentíð kom út 2019 og fékk fádæma góðar viðtökur.